Mánudagur 11. ágúst 2014 kl. 09:52
Biluð SAS-vél lenti á Keflavíkurflugvelli
– hélt áfram til Bandaríkjanna í morgun
Flugvél frá SAS með 249 farþega á leið frá Kastrupflugvelli í Kaupmannahöfn til Chicago í Bandaríkjunum þurfti að lenda á Keflavíkurflugvelli síðdegis í gær vegna bilunar.
Farþegarnir gistu á hótelum á Íslandi í nótt en farþegunum var flogið áfram til Chicago í morgun.