HSS
HSS

Fréttir

Bílstjórar ráðgera að trufla umferð um Reykjanesbraut
Sunnudagur 24. júlí 2005 kl. 13:53

Bílstjórar ráðgera að trufla umferð um Reykjanesbraut

Hópur atvinnubílstjóra ráðgerir að loka Reykjanesbrautinni svo truflun verði á millilandaflugi á fimmtudag eða föstudag fyrir verslunarmannahelgi til að mótmæla verðhækkunum á dísilolíu.

Í viðtali við Morgunblaðið segir Sturla Jónsson vörubílstjóri að mikil óánægja ríki á meðal atvinnubílstjóra með hækkun dísilolíu og dæmi séu um að vörubílstjórar þurfi að kaupa olíu fyrir 30 til 50 þúsund krónur á dag eftir hækkunina.

Einnig er ráðgert að loka gatnamótum Vesturlands- og Suðurlandsvegar þessa sömu daga til að trufla umferð úr borginni.

Ráðgert er að loka vegunum í um tvo til fjóra tíma og hægt er að búast við mikilli umferðarteppu ef þetta gengur eftir.

Vf-mynd úr safni: Reykjanesbrautin

Bílakjarninn
Bílakjarninn