Bílstjórar með sleða
Lögrelgan á Suðurnesjum hefur fengið nokkrar tilkynningar um ökumenn sem aka um í þéttbýli með fólk á sleðum eða uppblásnum slöngum í bandi á eftir sér.
Lögreglan vill beina því til fólks að slíkt er bæði langt frá því að vera skynsamlegt og að sjálfsögðu ólöglegt.
"Ég sá sjálfur hvernig bíll með lítinn barnasleða í eftirdragi ók á 50 til 60 km hraða innanbæjar," sagði varðstjóri á vakt í samtali við fréttavef Morgunblaðsins og greint er frá á mbl.is.