Bíllinn enn ekki kominn í leitirnar
Lögreglan á Suðurnesjum lýsir enn og aftur eftir bifreiðinni með númerið JBT01. Bifreiðinni var stolið frá Grindavík hinn 18. apríl s.l. og hefur ekki komið fram. Bifreiðin er af gerðinni Volkswagen Polo, árgerð 2013, grá að lit og er hún tjónuð á vinstra framhorni.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar bifreiðina gæti verið að finna eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum í síma 444-2200 eða 112.