Bíllausi dagurinn í dag og frítt í Strætó
Í dag er Bíllausi dagurinn í tilefni af evrópsku samgönguvikunni og það er frítt í alla vagna Strætó, bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni.
Strætó hefur tekið þátt í samgönguvikunni með viðburðinum Bíllausi dagurinn undanfarin ár og í ár ákvað Vegagerðin að taka einnig þátt en Vegagerðin rekur og ber ábyrgð á landsbyggðarstrætó. Með því verður frítt með landsbyggðarstrætó í fyrsta sinn.
Þetta er því tilvalið tækifæri fyrir fólk til að breyta út af vananum, hvíla bílinn og velja fjölbreyttari og vistvænni ferðamáta.