Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Bíll valt og annar lenti á lögreglubifreið
Þriðjudagur 24. mars 2015 kl. 07:00

Bíll valt og annar lenti á lögreglubifreið

Bíll valt og öðrum var ekið aftan á lögreglubifreið á vettvangi skammt frá Vogaafleggjara í fyrrakvöld. Mikil ísing var á veginum þegar atvikið átti sér stað. Ökumaður var einn í bifreiðinni sem valt og hafði hann misst stjórn á henni með ofangreindum afleiðingum. Þegar lögreglubifreiðin nálgaðist slysavettvang og hægt var á henni skipti engum togum að annarri bifreið var ekið aftan á hana. Ökumaður bifreiðarinnar sem valt var fluttur með sjúkrabifreið á bráðamóttöku Landspítalans. Lögreglumaðurinn sem ók lögreglubifreiðinni og tveir farþegar í bifreiðinni sem ekið var aftan á hana voru fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024