Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Bílastæði við Keflavíkurflugvöll munu líklega fyllast
Laugardagur 17. mars 2018 kl. 06:00

Bílastæði við Keflavíkurflugvöll munu líklega fyllast

Í fréttatilkynningu sem ISAVIA sendi frá sér er gert ráð fyrir því að bílastæði við Keflavíkurflugvöll muni fyllast um páskana líkt og gerðist á sama tíma fyrir ári síðan.

Vinsælt er meðal Íslendinga að leggja land undir fót í páskafríinu og hvetur Isavia þá farþega til að bóka bílastæði við flugvöllinn fyrir brottför til að forðast það að fá ekki bílastæði við komu.

Public deli
Public deli

Á vefsíðu Keflavíkurflugvallar er bent á nýtt bókunarkerfi sem eigi að tryggja farþegum stæði um páskana og sömuleiðis er hægt að fá bílastæðin á betri kjörum en þegar greitt er við hliðið.

„Bókunarkerfinu var hleypt af stokkunum í febrúar og er liður í því að koma í veg fyrir að stæðin fyllist á álagstímum á flugvellinum. Lægsta sólarhringsverð yfir páskana er nú 990 krónur og því fyrr sem bókað er, því lægra verð fæst. Verð á sólahring fyrir þá sem ekki bóka stæði og greiða við hlið er 1.750 krónur,“ segir í tilkynningunni.