Bygg
Bygg

Fréttir

Bílasprautun Suðurnesja styrkir Björgunarsveitina Suðurnes
Þriðjudagur 30. desember 2003 kl. 15:32

Bílasprautun Suðurnesja styrkir Björgunarsveitina Suðurnes

Björgunarsveitinni Suðurnes barst góður stuðningur á dögunum frá Bílasprautun Suðurnesja. Fyrirtækið kostaði upp-setningu á handfrjálsum búnaði fyrir GSM síma í fjórum bifreiðum björgunarsveitarinnar. Búnaðinn hafði björgunarsveitin fengið að gjöf frá Símanum fyrr á þessu ári. Gunnar Stefánsson, formaður Björgunarsveitarinnar Suðurnes, sagði í samtali við Víkurfréttir að stuðningur sem þessi væri ómetanlegur fyrir sveitina. Talsverð vinna liggur á bakvið svona ísetningu. Bílasprautarar eru hins vegar vanir því að taka innréttingar úr bílum og setja saman aftur og því var það ekki tiltökumál fyrir Bílasprautun Suðurnesja að setja búnaðinn í fjóra bíla sveitarinnar. Meðfylgjandi mynd er af starfsfólki Bílasprautunar Suðurnesja sem stillti sér upp til myndatöku nú fyrir jólin. VF-ljósmynd: Páll Ketilsson
Bílakjarninn
Bílakjarninn