Föstudagur 9. ágúst 2002 kl. 07:48
Bilanir í vél Travolta ástæða þess að hann hélt áfram yfir hafið

Bilanir í flugvél ofurstjörnunnar JohnTravolta eru ástæða þess að hann hélt áfram yfir hafið snemma í morgun, í stað þess að gista eina nótt á Íslandi. Tímaplön voru farin að raskast og ferðalagið um heiminn á eftir áætlun. Boeing 707B þota leikarans góðkunna er komin til ára sinna og bilanir hafa verið að koma upp í vélinni á ferðalagi hennar um heiminn. Þannig var Travolta og fjölskylda í vikutíma í Tokyo á dögunum vegna vélarbilunar. Travolta flaug til Íslands í nótt frá Anchorage International Airport í Alaska og héðan er ferðinni heitið áfram til Evrópu.Tveir öryggisverðir John Travolta hafa verið hér á landi síðustu daga og meðal annars tekið út gististaði og hugsanlega skoðunarstaði. Þannig var Bláa lónið sterklega inni í myndinni sem áningarstaður Travolta og fjölskyldu í Íslandsheimsókninni sem aðeins stóð yfir í rúma klukkustund snemma í morgun.