Bygg
Bygg

Fréttir

Bíl stolið frá bakara í morgunsárið
Þriðjudagur 15. október 2002 kl. 09:07

Bíl stolið frá bakara í morgunsárið

Lögreglan í Keflavík leitar nú að hvítri Ford sendibifreið sem var stolið frá Nýja bakaríinu í morgun. Skráningarnúmer bílsins er VJ 065. Það var um kl. 06 í morgun sem bifreiðin hvarf frá bakaríinu við Hafnargötuna og síðan þá hefur ekki spurst til bílsins. Skúli Jónsson varðstjóri segir sína menn nú vera úti að leita bílsins.Talsverður erill var hjá lögreglunni í gærkvöldi og nótt að sögn Skúla.
Bílakjarninn
Bílakjarninn