Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Bifreið fór tvær veltur
Föstudagur 5. október 2018 kl. 10:37

Bifreið fór tvær veltur

Bílvelta varð í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í gærkvöld. Ökumaður sem var á ferð eftir Nesvegi missti stjórn á bifreið sinni í beygju með þeim afleiðingum að hún fór út af veginum og fór tvær veltur áður en hún staðnæmdist.

Ekki urðu teljandi slys á ökumanni né farþega sem var með honum en þeir leituðu aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Bifreiðin er talin ónýt.
 
Fyrr í vikunni hafði ökumaður misst stjórn á bifreið sinni á Grindavíkurvegi og hafnaði hún utan vegar. Ökumaðurinn slapp ómeiddur.
 
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024