Bifhjól á 237 km hraða á Garðvegi
Lögreglan á Suðurnesjum mældi ökumann bifhjóls á 237 km hraða í gær á Garðveginum og veitti honum eftirför.
Eins og gefur að skilja reyndist það erfitt því gríðarlegur hraði var á hjólinu og ekki tókst að hafa hendur í hári ökumanns. Lögreglan sagðist varla muna eftir að hafa fengið aðra eins tölu á radar-mælinn hjá sér en myndavélarnar á Garðveginum munu eflaust sjá um að góma þann seka.