Biðraðir á kjörstað hjá sjálfstæðismönnum
– Fyrstu tölur birtar upp úr kl. 19:15 í kvöld.
Biðraðir voru á kjörstað í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ sem fram fór í dag. Prófkjörinu lauk nú kl. 18:00. Ekki liggja fyrir nákvæmar tölur um þátttöku en síðdegis var þátttakan á svipuðum nótum og í síðasta prófkjöri fyrir fjórum árum.
Fyrstu tölur úr talningu eru væntanlegar uppúr kl. 19:15 í kvöld en tölurnar verða fyrst birtar þátttakendum í prófkjörinu sem ætla að safnast saman á Kaffi Duus. Fljótlega eftir það verða þær birtar hér á vf.is.