Reykjanesbær aðventugarðurinn
Reykjanesbær aðventugarðurinn

Fréttir

Bíða spennt eftir að hraunið renni yfir skurðinn
Frá vinnu við lagnaskurðinn í Nátthaga. Myndir af Fésbók Landsnets.
Fimmtudagur 19. ágúst 2021 kl. 16:16

Bíða spennt eftir að hraunið renni yfir skurðinn

Grafinn hefur verið skurður í mynni Nátthaga og í hann lagðar lagnir, rör og ýmsar tegundir af einangrunar- eða fylliefnum. Landsnet hefur fengið afnot af öðrum enda skurðsins og í hann er settur strengsandur og hann þjappaður eftir kúnstarinnar reglum. Hitamælar settir í skurðinn og svo er fyllt upp í hann.

„Svo bíðum við spennt og vonumst til þess að hraunið renni yfir skurðinn. Heppnist þessi tilraun vonumst við til þess að eignast mæliniðurstöður sem telja má einstakar á heimsvísu og verða mjög mikilvægt innlegg í vitneskju um áhrif hraunflæðis á jarðstrengi og aðra innviði sem grafnir eru í jörðu,“ segir í færslu Landsnets á Facebook. Þar segist fyrirtækið bíða spennt eftir að hraun renni yfir skurðinn en fyrirtækið er þátttakandi í spennandi verkefni í Nátthaga við gosstöðvarnar í Fagradalsfjalli. Verkefnið snýst um að freista þess að mæla áhrif hraunrennslis á lagnir í jörðu.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Aðilar sem koma að þessu verkefni eru Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Jarðvísindastofnun Háskólans, Veðurstofa Íslands, Landsvirkjun, Neyðarlínan 112, Verkís, Verkfræðistofa EFLA, Míla, Gagnaveitan, Tensor, Rafholt ofl.

VF jól 25
VF jól 25