Bíða með endanlegar ákvarðanir með gúmmíkurlsvelli
Fulltrúar Sandgerðisbæjar fylgjast með framvindu mála er varðar gúmmíkurl á gervigrasvöllum og hafa kannað möguleika á úrbótum. Gervigrasvöllur með gúmmíkurli var settur upp við íþróttamiðstöðina og grunnskólann í Sandgerði árið 2009.
Á vef Sandgerðisbæjar segir að ýmis vinna hafi farið fram hjá bæjarfélaginu eftir að erindi frá Heimili og skóla í september 2015, þar sem stjórn landsamtakanna fór fram á það við sveitarfélög að gervigrasvellir þar sem notað er gúmmíkurl úr dekkjum verði endurnýjaðir í ljósi upplýsinga um að slíkt dekkjarkurl innihaldi krabbameinsvaldandi efni.
„Nú liggur fyrir til samþykktar þingsályktunartillaga sem miðar að gúmmíkurli úr dekkjum verði skipt út fyrir hættuminni efni á þeim leik- og íþróttavöllum sem þar er nú að finna. Samband Íslenskra sveitarfélaga hefur bent á að ekki liggur fyrir hvaða gúmmíefni uppfylla skilyrði að vera viðurkennd og telja að það hljóti að vera grundvallarforsenda fyrir því að hægt sé að fá niðurstöðu í málið til framtíðar. Sambandið ráðleggur sveitarfélögum að fylgjast vel með framvindu málsins og mögulega bíða með endanlegar ákvarðanir þar til niðurstaða liggur fyrir. Sandgerðisbær mun halda áfram að vinna að málinu, fylgjast með umræðunni og möguleikunum áður en gripið verður til aðgerða,“ segir á vef bæjarins.