Framúrskarandi fyrirtæki 2025
Framúrskarandi fyrirtæki 2025

Fréttir

Biblíu, borvél og bakkmyndavél stolið
Þriðjudagur 6. október 2015 kl. 14:45

Biblíu, borvél og bakkmyndavél stolið

– Þjófar létu greipar sópa á Suðurnesjum

Óvenjumargar tilkynningar um þjófnaði og innbrot bárust lögreglunni á Suðurnesjum í gær. Tilkynnt var um þjófnað á skjávarpa af veitingastað. Þá var farið inn í íbúðarhúsnæði og þaðan stolið fartölvu og veski með nokkur þúsund krónum í.

Úr annarri íbúð, sem brotist hafði verið inn í, var meðal annars stolið skarti, ryksugu, flatskjá, borvél, tölvuskjá og biblíu. Úr næstu íbúð fyrir ofan á sama stigagangi var búið að stela ryksugu, auk þess sem skemmdir höfðu verið unnar á húsnæðinu.

Þá var farið inn í bifreið í umdæminu síðastliðinn föstudag og þaðan stolið bakkmyndavél, um 40 geisladiskum, auk fleiri muna.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk
Dubliner
Dubliner