Betri merkingar og lýsingu, takk
Bæjarstjórn Sandgerðis leggur áherslu á betri merkingar á Sandgerðisvegi frá hringtorgi við Leifsstöð (Rósaselstorgi) og að Suðurgötu í Sandgerði og hvetur Vegagerðina til að bæta úr.
Bæjarstjórn leggur áherslu á lýsingu á Sandgerðisveg með áherslu á gatnamót að Mánagrund.
Bæjarstjórn leggur einnig áherslu á lagfæringar á veginn á milli Sandgerðisbæjar og Sveitarfélagsins Garðs. Þetta kom fram á síðasta fundi bæjarstjórnar Sandgerðis.