Berglind nýr forstöðumaður Háskólabrúar Keilis
Njarðvíkingurinn Berglind Kristjánsdóttir hefur tekið við stöðu forstöðumanns Háskólabrúar Keilis, en hún tekur við starfinu af Soffíu Waag Árnadóttur sem hefur hafið störf á öðrum vettvangi.
Berglind er útskrifaðist úr Kennaraháskólanum árið 2005 og hóf störf sem grunnskólakennari í Njarðvíkurskóla sama ár þar sem hún sinnti aðallega umsjónar- og stærðfræðikennslu á unglingastigi. Þá var hún fagstjóri í stærðfræði á árunum 2012 - 2015. Berglind hefur starfað sem verkefnastjóri á Háskólabrú frá því í ágúst 2015.