Bergið í bleiku

Bleik lýsing er einnig sýnileg annars staðar á landinu í byrjun október, fyrsta má telja Bessastaði en bleik lýsing verður einni m.a. á Selfossi, Akranesi, Ísafirði, og á Austfjörðum. Með hliðstæðum hætti verða lýst upp tvö hundruð mannvirki í fjörutíu löndum í tilefni átaksins, meðal annars Empire State í New York, Niagara fossarnir og Harrod’s í London.
Í rúmlega þrjátíu verslunum hér á landi sem selja vörur frá Estée Lauder verða boðnar bleikar slaufur til sölu og þar verður tekið við frjálsum framlögum í sérmerkta söfnunarbauka. Öllum ágóða af sölunni verður varið til verkefna sem valin verða í samráði við Krabbameinsfélagið og Samhjálp kvenna, sem eru samtök kvenna sem greinst hafa með krabbamein í brjóstum.
KB banki leggur brjóstakrabbameinsátakinu einnig lið. Á öllum afgreiðslustöðum bankans verða seldar bleikar slaufur og tekið við frjálsum framlögum í söfnunarbauka.
Ár hvert greinast 160-170 íslenskar konur með brjóstakrabbamein, þar af er nær helmingurinn á aldrinum frá 30 til 60 ára. Fjöldi nýrra tilfella hefur verið að aukast en lífshorfurnar hafa einnig batnað mikið. Um helmingur kvenna sem greindust með brjóstakrabbamein fyrir fjörutíu árum lifðu í fimm ár eða lengur en nú geta um 80% vænst þess að lifa svo lengi. Nú eru á lífi tæplega 1900 konur sem fengið hafa brjóstakrabbamein. Samkvæmt útreikningum frá Krabbameinsskránni getur tíunda hver kona búist við að fá brjóstakrabbamein.
Hér á landi eru konur boðaðar til brjóstamyndatöku annað hvert ár á aldrinum frá 40 til 69 ára. Erlendar rannsóknir benda til þess að með því að taka röntgenmyndir reglulega af brjóstum kvenna megi lækka dánartíðni vegna krabbameins í brjóstum verulega.