Beraði sig í flugstöðinni
Nokkur erill hefur verið hjá flugstöðvardeild lögreglunnar á Suðurnesjum vegna ölvunar farþega í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Nýverið var til dæmis óskað liðsinnis lögreglu í flugstöðinni.
Þar var ölvaður flugfarþegi æstur og með ólæti. Hann hafði meðal annars verið að áreita aðra flugfarþega og bera sig fyrir framan þá. Hafði fjöldi farþega tilkynnt þessa ósæmilegu hegðun hans.
Maðurinn var óviðræðuhæfur og ósamvinnuþýður vegna ölvunar og var hann því færður í handjárn og fluttur á lögreglustöð. Þar var hann látinn sofa úr sér og síðan birt sektargerð. Að því búnu ætlaði hann að freista þess að komast í flug til fyrirhugaðs áfangastaðar.