Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Benni Kalli fræddi grindvísk ungmenni um hætturnar
Fimmtudagur 21. janúar 2016 kl. 09:26

Benni Kalli fræddi grindvísk ungmenni um hætturnar


Skagamaðurinn Berent Karl Hafsteinsson kom og ræddi við 10. bekkinga í Grindavík um slysahættur í umferðinni og þá einkum í tengslum við bifhjól. Ungu Grindvíkingarnir hlustu með athygli á Benna Kalla sem var aðeins tvítugur þegar hann lenti í alvarlegu mótorhjólaslysi eftir ofsaakstur á Akranesi fyrir um 20 árum.
Hann var heppinn að halda lífi en braut nærri fjórða hvert bein í líkamanum og missti vinstri fótlegginn. Benni heimsækir ungmenni um allt land eins og kostur er og ræðir um reynslu sína við nemendur í grunn- og framhaldsskólum um allt land.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024