Belginn búinn að skila af sér dópinu
Belginn, Gilles Romain Chaterine Classens, sem verið hefur í haldi lögreglunnar eftir flóttatilraun í síðustu viku, hefur skilað af sér fíkniefnunum sem hann hafði innvortis. Til að auðvelda honum verkið var hann látinn laxera. Ekki liggur fyrir hversu mikið magn af efnum um ræðir en það kemur í ljós síðar í dag.
Belginn slapp úr haldi lögreglunnar á fimmtudagskvöldið þegar fara átti með hann í röntgenmyndatöku á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Hann var síðan gripinn í miðbæ Keflavíkur snemma á föstudagsmorguninn.
---
Belginn við komuna til landsins. Mynd frá lögreglunni.