Beitti neyðarvörn á skemmtistað í Reykjanesbæ
Héraðsdómur Reykjaness hefur sýknað karlmann af ákæru fyrir líkamsárás en maðurinn var talinn hafa verið að verja sig gegn árás hins mannsins. Frá þessu er greint á mbl.is.
Maðurinn lenti í átökum á skemmtistað í Reykjanesbæ. Hann var ákærður fyrir að hafa veitt öðrum manni þungt högg í kvið og slegið hann í andlit svo hann fékk mikla krampakennda verki í kviðarholi og fleiri áverka.
Fram kemur í dómnum, að maðurinn sem var ákærður hafi verið tekinn hálstaki og þau viðbrögð hans að reyna að losa sig og reka olnbogann í hinn manninn verði teljast eðlileg og ekki hafa verið hættulegri en hálstakið.