Beinafundur við Innri Njarðvík
Bein fundust í fjöru við Innri Njarðvík fyrir helgi. Þau eru talin vera úr mjaðmargrind.Beinafundurinn fékkst staðfestur hjá lögreglunni í Keflavík og hefur hún beinin í sinni vörslu. Þar á bæ gátu menn ekki staðfest að um mannabein væri að ræða. Þau færu til rannsóknar þar sem skorið væri úr um tegund þeirra.Aðspurður um hvort þarna væru mannabein, svaraði varðstjóri hjá lögreglunni því til að þá hafi verið um smáan einstakling að ræða.