Bein leið mun bjóða fram í sveitarstjórnarkosningum í Reykjanesbæ
Bein leið mun bjóða fram í sveitarstjórnarkosningum í Reykjanesbæ í vor og leitar nú eftir áhugasömu fólki til að bjóða sig fram á lista framboðsins eða starfa með okkur í kosningunum.
Bein leið er óháð framboð sem má staðsetja á hinni frjálslyndu miðju. Framboðið hefur átt góðu gengi að fagna síðustu tvennar kosningar og starfað með meirihluta bæjarstjórnar síðustu tvö kjörtímabil. Guðbrandur Einarsson núverandi oddviti Beinnar leiðar er forseti bæjarstjórnar, að auki hans eru eftirfarandi aðilar í ráðum og nefndum bæjarins, sem og í undirbúningshópi framboðsins fyrir komandi kosningar:
Kolbrún Jóna Pétursdóttir
Valgerður Björk Pálsdóttir
Birgir Már Bragason
Helga María Finnbjörnsdóttir
Kristján Jóhannsson
Halldór Rósmundur Guðjónsson
Kristín Gyða Njálsdóttir
Hrafn Ásgeirsson
Áhugasöm hafið samband með tölvupósti á [email protected] eða með skilaboðum á Facebook síðu Beinnar leiðar.