Föstudagur 26. október 2007 kl. 09:31
Bátur sökk í Sandgerðishöfn

13 tonna eikarbátur Hafrós KE 2 sökk í smábátahöfninni í Sandgerði um klukkan 11.30 í morgun. Björgunarsveit Sandgerðis tókst að koma bátnum á flot og var hann dreginn að Norðurbryggju þar sem hann liggur við flotbelgi. Ekki er vitað orsök óhappsins en málið er í rannsókn.
Mynd/245.is: Frá vettvangi í gær.