HSS
HSS

Fréttir

Föstudagur 10. mars 2000 kl. 13:16

Bátur skemmdur við Iðavelli

Lítill frambyggður plastbátur varð skemmdarvörgum að bráð í Keflavík í nótt.Báturinn stendur við Iðavelli þar sem unnið var að viðgerðum á honum. Allar rúður voru brotnar í stýrishúsi, auk þess sem reynt var að kveikja í bátnum. Eldur hafði verið borinn að bréfarusli í bátnum en eldurinn ekki náð að læsa sig í neitt eldfimt.
Bílakjarninn
Bílakjarninn