Bátasafn í Reykjanesbæ

Reykjanesbær er nú eigandi safnsins en Fjárlaganefnd Alþingis veitti 8.5 milljónum til kaupa á safninu og koma því í sýningarhæft form. Safnið verður deild innan Byggðasafns Suðurnesja og hefur verið unnið að því sl. ár að koma sýningarhúsnæði í fullnægjandi horf. Safnið verður fyrst og fremst umgjörð um bátalíkönin en í gegnum þau á að segja sögu sjómennsku á Íslandi. Þar verða einnig til sýnis þeir hlutir sem Byggðasafnið á og tengjast sögu sjávarútvegs á Íslandi.
Safnið verður staðsett í þeim hluta Duus húsanna þar sem áður var fiskverkunarhús en elsti hluti þeirra, Bryggjuhúsið, var byggt árið 1877.
Sigurjón Jóhannsson, leikmyndasmiður er hönnuður sýningarinnar og
arkitektastofan Gata hefur séð um hönnun húsnæðisins.
Vefsíða Reykjanesbæjar