HSS
HSS

Fréttir

Bátafloti frá Sandgerði kominn á Norðurpólinn
Bátunum var raðað þannig upp að þeir mynda 90°N og nákvæm staðsetning var 89°59,4504’N 085°51,4796’E. Það er eiginlega ekki hægt að komast mikið norðar.
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
mánudaginn 16. október 2023 kl. 08:56

Bátafloti frá Sandgerði kominn á Norðurpólinn

Nemendur í Sandgerðisskóla hafa verið að taka þátt í skemmtilegu verkefni sem er samþætt samfélags- náttúrufræðigreinum og íslensku. Við sögðum frá verkefninu vorið 2022 en það heitir „Float Your Boat“ og er til vakningar um hlýnun jarðar.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Sandgerðisskóla hafði þá nýverið borist viðarbátar frá Bandaríkjunum og allir krakkarnir í 4. til 6. bekk sem komu að verkefninu fengu einn viðarbát en þessir viðarbátar eru skreyttir og merktir af hverjum og einum nemanda.

Í frétt Víkurfrétta frá því í apríl í fyrra segir að bátarnir verði sendir til baka og þaðan fara þeir á strandgæsluskipið Healy alla leið á Norðurskautið þar sem þeir eru settir á ís með staðsetningatæki. Þegar ísinn bráðnar fara þeir af stað og geta nemendur þá fylgst með næstu árin hvar þeir eru staðsettir og hvort bátana hefur rekið á land.

Nú hafa borist fréttir af því að bátunum frá Sandgerði hefur verið komið á Norðurpólinn. Það var reyndar farþegaísbrjóturinn „Le Commandant Charcot“ sem kom bátunum á áfangastað um miðjan ágúst síðastliðinn.

Bátunum var raðað þannig upp að þeir mynda 90N og nákvæm staðsetning var 89°59,4504’N 085°51,4796’E.

Ísinn á pólnum er alltaf á reki en þegar vorar að nýju mun hann brotna upp og bátarnir leggja þá upp í ófyrirséða siglingu um heimsins höf. Að minnsta kosti einn bátur úr svona verkefni sem merktur var „Float Your Boat“ rak á fjörur hér á Íslandi og þannig kom verkefnið inn á borð Sandgerðisskóla. Hvert bátarnir frá Sandgerði sem fluttir voru á Norðurpólinn munu reka að lokum mun framtíðin ein leiða í ljós. Mögulega munu þeir velkjast um í Norðuríshafinu um langan tíma þar til þeir taka á rás niður heimshöfin og kannski rata einhverjir þeirra heim til Sandgerðis að nýju.

Myndirnar með fréttinni voru teknar í Sandgerðisskóla vorið 2022 og á Norðurpólnum þann 17. ágúst sl. þegar bátunum var komið þar fyrir.