Fréttir

  • Barnalæknavakt á HSS þrisvar í viku
  • Barnalæknavakt á HSS þrisvar í viku
    Hörður Snævar Harðarson barnalæknir.
Miðvikudagur 3. febrúar 2016 kl. 10:24

Barnalæknavakt á HSS þrisvar í viku

- Hörður Snævar Harðarson barnalæknir með aukna þjónustu á HSS

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hóf sl. þriðjudag að bjóða upp á móttöku barnalæknis þrjá daga í viku.

Barnalæknirinn Hörður Snævar Harðarson, sem hefur áður sinnt ungbarnaeftirliti á HSS ásamt Sigurði Björnssyni, verður nú með tíma síðdegis á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum. Tímapantanir eru í móttöku HSS í síma 422-0500.

Fjölnir Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri lækninga á HSS, fagnar þessum áfanga.

„Við horfum til þess að þetta verði mjög góð viðbót við þjónustu HSS við börn og foreldra hér á svæðinu.  Auk þess er Hörður sérhæfður í smitsjúkdómum barna þannig að við vonumst til þess að hans kraftar muni einnig nýtast stofnuninni með öðrum hætti til lengri tíma litið.“

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024