Barðastrandarhrottarnir að verki?
DV.is hefur heimildir fyrir því að árásarmennirnir sem eru grunaðir um að hafa ráðist á mann í Reykjanesbæ í fyrrakvöld séu þeir sömu og tóku þátt í Barðastrandarráninu svokallaða þar sem ráðist var á úrsmið á Seltjarnarnesi á heimili hans og hann rændur. Annar árásarmannana hlaut tveggja ára óskilorðsbundinn dóm í því máli og hinn 20 mánaða óskilorðsbundinn dóm.
Lögreglan á Suðurnesjum lítur árásina í fyrrakvöld er mjög alvarlegum augum en fórnarlambið hlaut mikla höfuðáverka í árásinni.
Sjá nánar frétt dv.is hér