HSS
HSS

Fréttir

Baráttudagur Verkalýðsins, verkamenn spurðir spurninga
Miðvikudagur 30. apríl 2003 kl. 09:57

Baráttudagur Verkalýðsins, verkamenn spurðir spurninga

Baráttudagur Verkalýðsins, 1. maí er á morgun og má búast við einhverjum hátíðarhöldum á Suðurnesjum. Fyrsti maí hefur verið alþjóðlegur dagur verkalýðshreyfingarinnar frá 1889 en fyrsta kröfuganga á Íslandi var farin árið 1923. Við þetta tilefni ákváðu Víkurfréttir að leggja nokkrar spurningar fyrir verkamenn í Reykjanesbæ og spyrja þá hvaða þýðingu þessi dagur hefði fyrir þá í dag.Einar Brynjarsson, gröfumaður hjá Nesprýði
Hvaða þýðingu hefur 1. maí fyrir þig?
Þá eigum við loksins frí. Það má segja að þetta eini dagurinn á árinu sem við eigum pottþétt frí.
Ertu ánægður í starfi?
Já, verður maður ekki að vera það.
Hvernig lýst þér á kosningaloforð flokkanna í sambandi við launamál?
Mér líst ágætlega á þau mál hjá Vinstri grænum.

Gunnar Sveinsson, verkstjóri hjá Nesprýði
Skiptir 1. maí þig máli?
Já, hann skiptir mig miklu máli því þá fáum við loksins frí.
Ertu ánægður í starfi?
Já, svona þokkalega. Vinnuandinn hjá okkur félögunum er góður og einnig á kaffistofunni.
Ertu sáttur við launin?
Þau mættu nú alveg vera betri.
Ertu búinn að ákveða hvað þú ætlar að kjósa?
Nei, ætli í ákveði það ekki bara í kjörklefanum.

María Jónasdóttir, starfsmaður í Bakkavör
Hvað er 1. maí?
Það er frídagur verkalýðsins og kröfur um bætt lífskjör. Þessi dagur minnir okkur á baráttumál þeirra lægst launuðu.
Ertu ánægð í starfi?
Já, ég er ánægð í starfi og vinnuandinn er góður hér í Bakkavör.
Hvað finnst þér um kosningarloforð flokkanna í sambandi við launamál?
Þeir eru lítið að tala um hækkun launa enda þarf að laga skattinn fyrst svo maður fái eitthvað til baka. Ég er nú hrædd um að þessi kosningarloforð séu bara hálfgerð kosningarbrella.

Anna Bella Brito, starfsmaður í Bakkavör
Hvað þýðingu hefur 1. maí fyrir þig?
Það er nú gott að fá frí einu sinni á ári.
Ertu ánægð í starfi?
Já, mjög ánægð.
Ertu sátt við kaupið þitt?
Já, það er mjög fínt.
Ætlar þú að kjósa?
Nei, ég er frá Portúgal og get því ekki kosið.

Hákon Svanur Magnússon, starfsmaður Flugleiða
Hvaða þýðingu hefur 1. maí fyrir þig?
Í raun ekki neina þar sem unnið er þennan dag hjá Flugleiðum enda er ekkert sem heitir rauður dagur hjá okkur, hér er unnið alla daga.
Ertu sáttur við launin þín?
Nei, alls ekki.
Hvernig er að vinna hjá Flugleiðum?
Það er ágætt, skemmtilegur mannskapur sem ég starfa með en það mætti þó bæta margt.
Hvað ætlar þú að kjósa?
Ég hef ekki enn ákveðið það.

Mynd: Gunnar Sveinsson starfsmaður Nesprýði.
Bílakjarninn
Bílakjarninn