Bara jólaandi og enginn vínandi í eftirliti lögreglu
Lögreglan í Keflavík hafði í nótt sérstakt umferðareftirlit með ölvunarakstri á Reykjanesbraut við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Eftirlitið stóð frá klukkan 00:05 til 01:30 og voru 206 bifreiðar stöðvaðar.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu blésu allir ökumenn 0,00‰ í áfengisprófmæli.
Eitt frávik kom þó upp í aðgerðinni, en einn ökumaður var stöðvaður við akstur án ökuréttinda.
Niðurstaðan telst með eindæmum jákvæð, enda sjaldgæft að jafn stórt eftirlit skili sér án þess að neinn mælist undir áhrifum áfengis. Lögregla hefur ítrekað bent á að reglulegt og sýnilegt eftirlit sé lykilatriði í að draga úr hættu í umferðinni, sérstaklega á helgarnóttum og á leiðum þar sem umferð tengist ferðum til og frá flugvelli.
„Við verðum nú að segja að þetta sé allt nánast eins og það á að vera, vel gert ökumenn,“ segir í færslu lögreglu um málið.


