Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Þriðjudagur 21. maí 2002 kl. 10:56

Bannað að aka yfir 35 km/klst í Vogum

Settar hafa verið upp merkingar við allar innkomur í Vogana sem gefa til kynna að 35 kílómetra hámarkshraði verður á öllum götum. Einnig hafa verið sett upp sérstök merki við allar útkomur úr Vogunum sem gefa til kynna að sérstökum hámarkshraða sé lokið.                                    
Ýmsar aðrar merkingar hafa verið settar upp, svo sem  hraðahindranir, þrengingar, biðskyldumerki, botnlangamerki, gangbrautarmerki, einstefnumerki o.fl. Það er von umferðarnefndar að uppsetning þessara merkinga stuðli að betri og öruggari umferð fyrir alla, jafnt gangandi sem akandi segir á vefsíðu Voga í dag.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024