Bankinn mun að öllum líkindum áfrýja
Innheimtuaðgerðum vegna sambærilegra lána frestað.
„Umrætt mál sem vísað er til er eitt af mörgum vafamálum sem snerta lögmæti erlendra lána og mismunandi lánsforma, mál sem ljóst er að bankinn og lántakendur verða að fá endanlegan úrskurð um. Það er algjörlega óháð uppruna lánanna. Landsbankinn mun því að öllum líkindum áfrýja málinu þó ekki liggi fyrir endanlega ákvörðun um það að svo stöddu,“ segir Einar Hannesson, útibússtjóri Landsbankans í Reykjanesbæ um lánasamning sem dæmdur var ólögmætur í héraðsdómi fyrir skömmu. Víkurfréttir leituðu eftir viðbrögðum hjá Einari, fyrir hönd Landsbankans, í kjölfar umfjöllunarinnar.
Um var að ræða fasteignalán sem Hallfríður Hólmgrímsdóttir tók árið 2006 til að fjármagna byggingu húss í Grindavík. Lánið stökkbreyttist í kjölfar hrunsins og var lánasamningurinn dæmdur ólögmætur í héraðsdómi. Snorri Snorrason hdl. flutti málið fyrir dómnum. Mál Hallfríðar er fyrsta mál vegna einstaklingsláns vegna svona lánagerðar sem fær þessa meðferð fyrir héraðsdómi.
Einar segir enn fremur að á meðan beðið sé endanlegrar niðurstöðu í málinu muni bankinn ekki endurreikna lánin heldur bíða eftir leiðsögn Hæstaréttar. „Að sama skapi verður öllum innheimtuaðgerðum vegna sambærilegra lánasamninga frestað þar til niðurstaða liggur fyrir.”