HSS
HSS

Fréttir

Fimmtudagur 7. ágúst 2003 kl. 09:48

Bandaríkjastjórn fjallar enn um stöðu varnarmála á Íslandi

Bandaríkjastjórn er enn að fjalla um þá kröfu Íslendinga að herflugvélar verði ekki fluttar frá Keflavíkurflugvelli eins og bandaríska varnarmálaráðuneytið vill að verði gert. Talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins sagði í gær að viðræður stæðu yfir við Íslendinga um ýmsa möguleika varðandi framtíð varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli.
„Ég hef engar nýjar fréttir að færa," sagði Philip Reeker, talsmaður ráðuneytisins á blaðamannafundi í gær að því er kemur fram hjá AFP fréttastofunni. „Við erum að ræða þessi mál við Íslendinga."

Bandaríkjastjórn tilkynnti íslenskum stjórnvöldum í maí að áformað væri að flytja fjórar F-15 orrustuþotur, þrjár björgunarþyrlur og eldsneytisvélar burt frá Keflavíkurflugvelli í haust og væri það hluti af endurskipulagningu Bandaríkjahers á heimsvísu, segir í frétt Morgunblaðsins.
Bílakjarninn
Bílakjarninn