Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Banaslysið á Reykjanesi: Brennisteinsvetnisgas talin orsökin
Föstudagur 3. febrúar 2017 kl. 17:37

Banaslysið á Reykjanesi: Brennisteinsvetnisgas talin orsökin

Rannsókn á banaslysi á Reykjanesi í morgun miðast við að gastegundir hafi borist úr jafðhitaholu í híbýli mannanna. Það vatnsveitukerfi sé ótengt og alveg óháð vatnsveitu til almennings á Suðurnesjum segir í tilkynningu frá HS Orku sem lesa má í heild sinni hér að neðan.

Um klukkan tíu í morgun barst HS Orku tilkynning um að alvarlegt slys hefði orðið í húsnæði Háteigs sem er á athafnasvæði Reykjanesvirkjunar. Talið er að brennisteinsvetnisgas hafi komist í húsnæðið með þeim sorglegu afleiðingum að einn maður lést og annar komst í bráða hættu.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Fyrstu aðgerðir HS Orku í dag beindust að því að tryggja öryggi á svæðinu þar sem fjögur fyrirtæki starfa og aðstoða opinbera aðila við frumrannsókn. Vel gekk að tryggja öryggi á svæðinu. Rannsókn og aðgerðir í dag hafa miðast við að gastegundir hafi borist úr jarðhitaholu í híbýli mannanna. Aðgerðir voru þannig alfarið bundnar við lokað vatnsveitukerfi á athafnasvæði Reykjanesvirkjunar. Það vatnsveitukerfi er ótengt og alveg óháð vatnsveitu til almennings á Suðurnesjum.

HS Orka þakkar öllum þeim aðilum sem komu að aðgerðum í dag og mun starfa náið þeim opinberu aðilum sem fara með rannsókn málsins. Hún mun leiða fram mikilvægar upplýsingar og varpa ljósi á hvað nákvæmlega olli slysinu.

Hugur starfsmanna HS Orku er hjá aðstandendum og samstarfsmönnum hins látna.

Ásgeir Margeirsson
Forstjóri HS Orku