Bygg
Bygg

Fréttir

Fimmtudagur 26. október 2000 kl. 10:38

Banaslys á Keflavíkurflugvelli í morgun

Banaslys varð á Keflavíkurflugvelli nú í morgun. Maður með ítalskt ríkisfang fór í hreyfil flugvélar á athafnasvæði Varnarliðsins. Hann mun hafa látist samstundis.Ítalski maðurinn sem fór í hreyfil flugvélar á Keflavíkurflugvelli um hálfníuleytið í morgun var hér á vegum NATO. Hann lést samstundis. Vélin er frá Ítalíu, en hún var stödd við gömlu flugstöðina þegar slysið varð. Maðurinn stóð við vélina. Að sögn lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli er rannsókn á atvikinu í höndum lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli og varnarliðsins þar, en rannsóknarnefnd flugslysa verður ekki kölluð til. Vitni voru að atvikinu. Vísir.is greindi frá.
Bílakjarninn
Bílakjarninn