Bakkaði í skurð og klessti á grindverk
Það varð óvenjulegur árekstur við Heiðarból 1 í Reykjanesbæ í dag þegar ökumaður bifreiðar bakkaði ofan í skurð og svo á grindverk. Var hann að laga bílinn af en tók ekki eftir skurðinum sem var fyrir aftan. Lenti bíllin þar ofaní og við það steyptist hann á grindverk hússins. Engin meiðsli urðu á fólki en bíllin fór mjög illa út úr þessum árekstri og skemmdist mikið. Grindverkið við húsið skemmdist einnig töluvert.