Bakkaði fram af grjótgarði og hafnaði í sjónum

Hitt er merkilegra, að þegar aðkeyptu skemmtikraftarnir, sem Reykjanesbær borgar laun, koma á svið, þá tala þeir flestir um Keflavík. Gaman að vera kominn til Keflavíkur... Eru ekki allir í stuði í Keflavík... og þess háttar. Bæjarstjórinn hefur lagt á það áherslu að fyrirtækin í bænum hætti að nota Keflavík og Njarðvík í heimilisföngum sínum og noti frekar Reykjanesbær. Það virðist hins vegar erfitt að koma nafninu inn hjá skemmtikröftum landsins en Svörtu og sykurlausu skilst að lausnin sé fundin. Skemmtikraftarnir verða látnir skrifa undir samning þess efnis áður en þeir fara á svið, að ef þeir minnast einu orði á Keflavík eða Njarðvík, þá fá þeir ekki greidda krónu fyrir uppistandið...