Bætt skipulag í slysa- og bráðamóttöku HSS

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem HSS sendi frá sér í dag.
Þar segir einnig að boðið verði upp á hraðmóttöku heilsugæslulæknis í ákveðnum tilfellum þar sem skjótrar úrlausnar þarfnast.
Eftir sem áður er gert ráð fyrir að einstaklingur hafi fyrst samband við móttökuritara í afgreiðslu sem tekur við greiðslu skv. gjaldskrá Tryggingastofnunar ríkisins.
Best og ódýrast er að panta sér tíma hjá heilsugæslulæknum. Búist er við að biðtími muni styttast verulega á næstu vikum með bættri mönnun, segir í tilkynningunni.
Þar kemur fram að vaktmóttaka er til staðar milli kl. 16 – 20 alla virka daga og milli kl. 10 – 13 og milli kl. 17 – 19 um helgar og hátíðisdaga.
Neyðarmóttaka er opin alla daga, allan sólarhringinn á HSS.