Bygg
Bygg

Fréttir

Bætist í bátaflota Reykjanesbæjar
Fimmtudagur 28. apríl 2005 kl. 15:47

Bætist í bátaflota Reykjanesbæjar

Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar undirritaði í dag samning í Bátasalnum í Duushúsum. Með samningnum eignast Reykjanesbær fleiri bátalíkön eftir Grím Karlsson.  Fyrir voru um 60 bátar á sýningunni og er þetta kærkomin viðbót.

Félag áhugamanna um Bátasafn Gríms Karlssonar fékk tveggja milljóna króna fjárveitingu frá ríkinu til kaupa á sjö skipslíkönum. Félagið stefnir á að ná fleiri af skipum Gríms inn á safnið á næstu árum. Vonast er til að safnið hýsi í það minnsta 100 skipsmódel að endingu.

Félagið mun standa fyrir sýningunni Síldarveiðar við Ísland í Gryfjunni í Duushúsum 11. maí næst komandi og stendur hún fram yfir sjómannadaginn.

VF - Mynd/Margrét

Bílakjarninn
Bílakjarninn