Bætir í vind í kvöld
Klukkan 6 var vestlæg átt, víða 8-13 m/s, en hægari austanlands. Skúrir eða él, en bjartviðri að mestu austantil. Hiti var frá 4 stigum í Vestmannaeyjum niður í 6 stiga frost á Eskifirði.
Veðurhorfur næsta sólarhring: Vestan og suðvestan 8-13 m/s, skýjað með köflum og stöku él eða skúrir. Bætir heldur í vind í kvöld með rigningu eða slyddu. Hiti 0 til 5 stig, en sums staðar vægt frost í uppsveitum.