Bæta fjarskipti austan Fagradalsfjalls
Björgunarsveitin Þorbjörn hefur sett upp fjarskiptaendurvarpa á Núpshlíðarhálsi sem er skammt austan við Fagradalsfjall. Endurvarpinn var settur upp um nýliðna helgi en honum er ætlað að bæta fjarskiptasamband austan Fagradalsfjalls en þar er mikið hálendislandslag og fjarskipti geta verið erfið.
Með því að bæta fjarskiptasamband á svæðinu eykst öryggi björgunarsveitarfólks og vísindamanna sem vinna á svæðinu. Auk björgunarsveitarfólks úr Grindavík þá tóku félagar úr Björgunarsveit Hafnarfjarðar þátt í verkefninu, enda eru þeir margrómaðir sérfræðingar í þessum málum, segir á fésbók Grindvíkinganna.
Björgunarsveitin Þorbjörn heldur úti síðu á Instagram þar sem finna má fleiri myndir úr starfi sveitarinnar