Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Bænum skipuð fjárhagsstjórn náist ekki samningar
Fimmtudagur 8. október 2015 kl. 14:43

Bænum skipuð fjárhagsstjórn náist ekki samningar

– Alvarleg fjárhagsstaða Reykjanesbæjar tilkynnt til Kauphallarinnar

Náist ekki samningar við kröfuhafa um fjárhagslega endurskipulagningu Reykjanesbæjar og stofnana hans verður samkvæmt sveitarstjórnarlögum óskað eftir því að bæjarfélaginu verði skipuð fjárhagsstjórn. Þetta kemur fram í tilkynningu Reykjanesbæjar til Kauphallarinnar í dag. Stefnt er að því að leggja fram tillögu að heildar endurskipulagningu fjárhags Reykjanesbæjar og stofnana hans fyrir kröfuhafa á næstunni.

Í tilkynningu til Kauphallarinnar þann 8. mars sl. tilkynnti Reykjanesbær um alvarlega fjárhagsstöðu bæjarfélagsins. Jafnframt var tilkynnt um að bæjaryfirvöld ættu í viðræðum við kröfuhafa um endurskipulagningu skuldbindinga bæjarfélagsins.

Viðræðurnar standa enn yfir og taka mið af því að skuldaviðmið sveitarfélagsins verði komið niður fyrir lögbundið hámark í árslok 2022. Þeir kröfuhafar sem bæjarfélagið hefur átt í viðræðum við hafa veitt afslátt á greiðslum samhliða viðræðunum.

„Eigi viðræðurnar að skila árangri er nauðsynlegt að samkomulag náist við helstu kröfuhafa um verulega niðurfellingu skulda. Vinna við endurskipulagningu bæjarins hefur áhrif á skuldbindingar stofnana og félaga bæjarins, sbr. tilkynningar frá Reykjaneshöfn 2. október og fyrr í dag hinn 8. október þar sem tilkynnt var um að bæjarráð hefði hafnað beiðni hafnarinnar um fjármögnun. Reykjanesbær er samkvæmt lögum í ábyrgð fyrir skuldbindingum Reykjaneshafnar. Aðkoma kröfuhafa Reykjaneshafnar, í formi endurskipulagningar skulda, er forsenda samninga um fjárhagslega endurskipulagningu Reykjanesbæjar,“ segir í tilkynningunni.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024