HSS
HSS

Fréttir

Bækur í stað peninga að Tjarnargötu 12
Á næstu vikum mun Bókasafn Reykjanesbæjar flytja í gömlu húsakynni Spkef við Tjarnargötu 12.
Miðvikudagur 22. maí 2013 kl. 14:01

Bækur í stað peninga að Tjarnargötu 12

Stór hluti Bókasafns Reykjanesbæjar hefur verið fluttur frá Hafnargötu 57 að Tjarnargötu 12. Næstu dagar og vikur fara í að koma safninu fyrir en formleg opnun hússins er áætluð 11. júní, á afmælisdegi Reykjanesbæjar.

Með þessum flutningi mun kjarnaþjónusta Reykjanesbæjar verða öll á einum stað í Ráðhúsinu. Þessi mynd var tekin í nýja húsnæðinu en þar var Sparisjóðurinn í Keflavík og síðar Landsbankinn í nærri þrjá áratugi.

Bílakjarninn
Bílakjarninn