Bæjaryfirvöld í Sandgerði boða íbúa á fund
Boðað hefur verið til íbúafundar um fjárhagsáætlun 2017-2020 hjá Sandgerðisbæ. Fundurinn verður 8. nóvember nk. Á fundinum gefst íbúum tækifæri til þess að kynna sér rekstur bæjarfélagsins og koma sjónarmiðum sínum um fjárhagsáætlun næstu fjögurra ára á framfæri.
„Kæru bæjarbúar.
Boðað er til íbúafundar þriðjudaginn 8. nóvember um fjárhagsáætlun Sandgerðisbæjar fyrir tímabilið 2017-2020. Fundurinn verður haldinn að Miðnestorgi 3, í fundarsal Vörðunnar á fyrstu hæð og hefst kl. 20. Á fundinum verður farið yfir fjárhagsáæltun og starfsáætlun bæjarins sem nú er til vinnslu og verður afgreidd á fundi bæjarstjórnar 6. desember.
Fundurinn er haldinn í samræmi við 58. gr. um stjórn og fundarsköp Sandgerðisbæjar en þar segir m.a.:
„Til þess að veita íbúum upplýsingar um málefni sem varða þá með almennum hætti heldur bæjarstjórn borgarafund eftir fyrstu umræðu í bæjarstjórn um fjárhagsáætlun og gerir grein fyrir áherslum áætlunarinnar.“
Einnig segir í 58. gr.:
„Fjárhagsáætlanir skulu gefa glögga mynd af rekstri bæjarfélagsins, efnahag og breytingum á handbæru fé. Einnig skal þar koma fram greinargott yfirlit um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjárheimildir bæjarfélagsins.“
Á fundinum gefst íbúum tækifæri til þess að kynna sér rekstur bæjarfélagsins og koma sjónarmiðum sínum um fjárhagsáætlun næstu fjögurra ára á framfæri.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Með góðum kveðjum,
Sigrún Árnadóttir
Bæjarstjóri“.