Bæjarstjórnir farnar í sumarfrí
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur samþykkt að fela bæjarráði fullnaðarafgreiðslu mála á meðan sumarleyfi bæjarstjórnar stendur yfir frá 19. júní til 14. ágúst n.k.
Næsti bæjarstjórnarfundur verður þriðjudaginn 20. ágúst 2019 í Merkinesi í Hljómahöll.
Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar hefur samþykkt að veita bæjarráði heimild til fullnaðarafgreiðslu mála meðan sumarleyfi bæjarstjórnar stendur yfir, frá 6. júní 2019 til 4. september 2019.
Næsti reglulegi fundur bæjarstjórnar verður miðvikudaginn 4. september 2019.