HSS
HSS

Fréttir

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar bannar einkadans
Þriðjudagur 4. mars 2003 kl. 20:23

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar bannar einkadans

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti á fundi sínum í kvöld að leggja bann við einkadansi á nektarstöðum, líkt og önnur sveitarfélög hafa gert. Með tillögunni fylgir greinargerð þar fjallað er um dóm hæstaréttar og ýmis atriði sem fjalla um manssal og vændi. Í lok greinargerðarinnar segir: „Í ljósi alls framangreinds teljum við það skyldu okkar að bregðast við með sama hætti og önnur bæjarfélög hafa gert. Með því er ekki verið að fella neinn dóm yfir þeirri starfsemi sem hér er í Reykjanesbæ, heldur viljum við senda ákveðin siðferðisskilaboð, ekki síst til æsku Reykjanesbæjar, en um leið túlka allan vafa þeim í hag sem telja að ólögleg starfsemi tengist þessum stöðum.“
Tillagan var samþykkt með 7 atkvæðum, en fjórir sátu hjá.
Bílakjarninn
Bílakjarninn