Bæjarstjórn Hafnarfjarðar styður sameiningu

Þær ítarlegu upplýsingar sem liggja fyrir varðandi greiningu á áhrifum sameiningar í skýrslu ráðgjafafyrirtækisins ParX, eru að mati bæjarstjórnar góður grundvöllur ákvörðunartöku fyrir íbúa sveitarfélaganna. Samkvæmt meginniðurstöðum skýrslunnar eru fjölmargir þættir sem benda til þess að sameining þessara sveitarfélaga sé góður kostur fyrir íbúa bæði í Hafnarfirði og Vatnsleysustrandarhreppi, sé litið til þjónustuþátta, fjárhagsmála og margvíslegra sameiginlegra hagsmuna sveitarfélaganna.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar lýsir yfir stuðningi sínum við sameiningu sveitarfélaganna í kosningunum 8. október n.k. og hvetur íbúa í Hafnarfirði til að kynna sér vel þær upplýsingar sem liggja fyrir og jafnframt að taka þátt í kosningunum.
Af vef Hafnarfjarðar